Móðurstöð tweety

Verið velkomin

10.12.2007 18:43:01 / tweety

Búin að gefast upp!

Komin á nýtt vefsvæði... það er samt ennþá í vinnslu, svo sínið biðlund;)

www.tweetybird.bloggar.is

adios!


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 14:22:32 / tweety

Arsenal að rúlla þessu upp!

Ekki það að ég viti mikið um gang mála í Enska boltanum. Þarf ekkert að fylgjast með því, af því að ég veit að mínir menn taka þetta ;) Það er bara einhver leikur í gangi núna og mig vantaði titil á færsluna :lol:

Jæja, nóg um að vera. Fór með trukkastelpunum út á lífið síðustu helgi. Fórum á Broadway á George Michael show-ið með dinner og öllu. Það var rosa stuð. Vorum allar þvílíkt fínar. Í galakjólum með uppsett hárið. Okkur var skutlað niðureftir á Benz trailerum og þar tók ljósmyndari á móti okkur. Rosaflott. Eftir Broadway var tekin limma upp á players þar sem Vinir vors og blóma biðu spenntir eftir okkur. Limminn sem við pöntuðum klikkaði samt á því að mæta en við vorum svo heppnar að það var bara einhver gamall maður á rúntinum á limmunni sinni og stoppaði þarna hjá Broadway til ð bjóða fólki far:!: Þegar við komum upp á players, fórum við Áslaug bara heim. Ég skildi bílinn minn nebbla eftir þar í byrjun kvöldsins og það var mjög hentugt að þurfa ekkert að vera að vesenast með far.

Það var síðan jólahlaðborð í vinnunni hjá mér í gærkvöldi. Það var haldið í Súlnasalnum á Sögu. Mjög fínt allt saman. Við vorum reyndar aðeins of mikið á víð og dreif um salinn í staðinn fyrir að sitja öll saman á borði. En þetta var ágætt. Það var síðan einhver bið á milli matarins og sýningarinnar sem átti síðan að vera og í millitíðinni fóru menn á barinn og út að reykja og þar byrjuðu lætin, eins og gengur og gerist í þessum bransa. Einn var laminn af dyraverðinum ( sem var enginn annar en Magnús Ver ) og svo gistu aðrir þrír fangageymslur í nótt. Við Böddi fórum heim eftir Magnúsar showið :lol: Það var líka rosalega gott að vera komin undir sæng uppí sófa um miðnætti og skella mynd í tækið.

Planið í dag er síðan að fara helst ekki út úr húsi. Það er skítakuldi úti og svo er ég að reyna að losna við einhverja helv... kvefpest sem byrjaði að sækja á mig í vikunni. Hálsbólga og fínerí! Ætla bara að liggja í bælinu eða uppí sófa og bíða eftir því að Emilía Rós komi heim.

Bless í bili, þangað til næst þá bið ég ykkur um að vera ekki feimin við að kvitta frir komunni og/eða segja ykkar skoðun hér að neðan. Adios;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 20:01:00 / tweety

síðasta tilraun...

... annars er ég flutt á annað vefsvæði!!!

Ég er ítrekað búin að reyna að blogga hérna síðustu 2-3 vikur og ekkert gerist! það bara hverfur færslan um leið og ég staðfesti hana, get ekki copy/paste-að eða neitt:whut:

Það er annars búið að vera nóg að gera síðan síðast. Við Böddi fórum í keilu með vinnunni minni fyrir 2 vikum, brjálað stuð og ég held að allir geti verið sammála um það að Binni vörubílstjóri hafi átt skot kvöldsins... Hann festi þumalinn í gatinu á kúlunni með þeim afleiðingum að hún skaust yfir á næstu braut og felldi þar 9 keilur:lol: Besti árangur hans þetta kvöldið hehe.

Ég fór líka á stelpukvöld í Heklu. Fékk að prufukeyra geggjaðan Scania trailer. Það var alveg meiriháttar. Svo vorum við allar leystar út með gjöfum, fengum boli, derhúfur og sólgleraugu. Þakka starfsmönnum Heklu bara kærlega fyrir, þetta var mjög gaman.

Keypti mér líka nýjan bíl á mánudaginn... Hann er GEGGJAÐUR!!!!!!!!!!!!!! Silfurgrár hundai santa fe, 2003 model, sjálfskiptur, rafmagn í rúðum. FRÁBÆR :haha: Mjög ánægð með hann;)

Heyrðu já, það er líka búið að opna vefsíðu fyrir okkur trukka stelpurnar, endilega kíkið á það www.trukkastelpurnar.bloggar.is Ég setti líka inn link hérna í "vinir og vandamenn" dálkinn til vinstri. En ég ætla að láta þeta duga í bili. Ekki vera feimin við að kvitta fyrir komunni og/eða segja ykkar skoðun hér að neðan. Góða helgi;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 20:41:45 / tweety

Helgarfrí

Já komin helgi enn eina ferðina... Djöfull flýgur tíminn8| Allavega, þetta var bara hin fínasta vinnuvika, gengur bara ljómandi vel í vinnunni. Komst reyndar ekki í fótboltann á fimmtudaginn, frekar svekkt yfir því. En það var kolvitlaust veður hérna suðurfrá. Við erum að tala um þrumur og eldingar og 35m/sek á brautinni svo ég var ekkert að hætta mér út það kvöldið.

Skellti mér svo í sund með Emilíu og Bödda eftir vinnu á föstudaginn og tók það svo bara rólega. Svipað í dag, fórum í langan göngutúr með viðkomu í bakaríinu og við ætluðum svo að kíkja á Áslaugu og co. En þá var hún ekki heima, en Jón Halldór og Ólöf Birna voru þar í video stemmingu svo við stoppuðum og borðuðum bara bakkelsið með þeim ;)

Ég skutlaði síðan Bödda og Jónasi ( hennar Áslaugar ) út í Sandgerði að hitta félagana í bjór og PS2 núna áðan. Áslaug ætlar svo að kíkja á mig á eftir og við ætlum bara að hafa það rólegt hérna heima. Ég er nottla með stelpuna svo ég fer ekki mikið út. Finnst það bara fínt að geta slakað á.

Jamm... Það er annars bara allt flott að frétta, ef þið hafið einhverjar spurningar þá er velkomið að koma þeim á framfæri í athugasemdunum hér að neðan. Ekki vera heldur feimin við að kvitta fyrir komunni. Það voru t.d. 119 heimsóknir á síðuna í dag og ENGINN kvittaði!!!!!!!!!!!! Bæta þetta gott fólk! Bless í bili ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 18:00:44 / tweety

Hefur einhver....

....annar orðið var við að heimasíðan hreinlega hverfi??? Ég hef nokkru sinnum síðustu 2 vikur lent í því að slá inn slóðan á síðuna mína og hún bara finnst ekki, kemur bara auður skjár með 3 auglýsingum og stendur "blog.central" efst í vinstra horninu... Skrítið:!:

En já Karen mín, ég skal bjóða þér á rúntinn þegar ég er búin að kaupa mér hjól, galla og hjálm;) Þ.e.a.s. þegar ég vinn í lottóinu, því þetta er helvíti dýrt. Var reyndar búin að panta GEGGJAÐAN hjálm og galla í stíl, sem var á frábæru tilboði. En það er búið að vera "týnt í pósti" síðan í apríl8| Mig er farið að gruna að það sé maðkur í mysunni þar.... Var sem betur fer ekkert búin að borga inná það, ætlaði að nota orlofið í að borga. En það kom og fór á meðan ég beið :lol:

Já svo er pabba helgi núna svo það er vinna hjá mér á morgun. Ætla svo að skella mér á bílasölurúnt eftir vinnu og leita mér að nýjum bíl :haha: Er lengi búin að vera að spá í að kaupa mér almennilegan bíl, er bara á einhverju 17 ára colt hræi sem rétt skröltir. Böddi er búin að nota hann sem vinnubíl síðustu 3 vikurnar og ég hef verið á hans bíl. Bíllinn hans er líka á betri dekkjum og eyðir minna, svo það er hagstæðara fyrir okkur. Þar sem ég er að keyra 120km á dag til og frá vinnu en hann 20km.

Skellti mér í fótbolta í gærkvöldi með vinnunni. Er öll lurkum lamin í dag :lol: En þetta var rosa gaman, ég skoraði 3 mörk og strákarnir í vinnunni allir voða ánægðir með mig;) Við ætlum að reyna að gera þetta að reglulegum æfingum, bara gaman af því. Gaman að hafa eitthvað svona utan vinnu.

Bið að heilsa í bili og eigið góða helgi öll sömul. Ekki gleyma að kvitta fyrir komunni ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 11:11:19 / tweety

Veikindafrí

Halló halló:!:

Rósin mín er lasin í dag svo við erum bara heima að hafa það notalegt. Svo gott að kúra saman, hún er auðvitað orðin "RISAstór" eins og hún orðar það sjálf, svo hún er ekkert mikið að kúra hjá manni. En núna vil hún bara fá að liggja hjá mömmu sinni og láta halda utan um sig ;) Hún er reyndar sofandi í augnablikinu svo ég fæ smá tíma til að þrífa öll rúmfötin sem hún ældi út í nótt og ganga aðeins frá :lol: Geggjað stuð... En þar sem ég var ekki búin að skrifa inn hérna í langan tíma þá ákvað ég nú að henda inn nokkrum línum:haha:

Jæja, helst í fréttum er það að ég stóðst mótorhjólaprófið með glæsibrag:D Loksins búin að afgreiða það. MJÖG fegin því verð ég að segja. Svo gengur allt glimrandi vel í vinnunni. Er eiginlega alveg búin að ná tökum á þessu öllu og farin að þekkja fólk í sundur :lol:

Skellti mér líka austur um síðustu helgi. Það var alveg meiriháttar. Veðrið kannski ekki uppá marga fiskana en við gerðum bara það besta úr því. Við Böddi klæddum okkur og Emilíu upp í pollagallana og fórum út að labba og leika okkur. Síðan tókum við til hendinni og hreinsuðum út úr skemmunni hans pabba. Fórum örugglega með heila 50 poka rúllu af svörtum pokum hehe. En það er líka hægt að ganga þar um núna ;) Svo var borðaður góður matur og fengið sér smá öl að kveldi. Finnst alltaf svo notalegt að koma til m&p. Mér finnst ég alltaf koma svo endurnærð heim.

Ég hugsa að ég láti þetta nægja í bili... Ekki vera feimin við að segja ykkar skoðun og/eða kvitta fyrir komunni ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 20:57:14 / tweety

Enn ein pabbahelgin...

Emilía Rós farin til pabba síns og ég sit ein eftir í kotinu! Böddi ennþá að vinna svo það er lítið gagn af honum núna ;) En ég er samt svo heppin að Svana vinkona var að flytja í stigaganginn hjá mér fyrir stuttu, svo ég get alltaf skroppið þangað ef mér leiðist :haha: Það er alveg meiriháttar... Bara rétt trítla niður á næstu hæð!

Rosa stuð í nýju vinnunni. Hef aðeins 2 komist hættulega nálægt því að velta, slapp með skrekkinn í bæði skiptið ( af því ég er svo klár ) En hvorugt skiptið reyndar mér að kenna svo það er allt í góðu:haha: Það eru nefninlega 3 búnir að velta síðan ég byrjaði svo þetta verður að teljast gott afrek hjá mér;)

Svo er það mótorhjólið... Allt að gerast þar! Verð væntanlega alla helgina að burra eitthvað og svo er prófið áætlað næsta þriðjudag.

Jæja, frekar langr dagur framundan á morgun svo ég ætla að klára heimilisstörfin og koma mér svo fljótlega í háttinn. Pælið samt í því að allt sem ég er að fara að gera á morgun tengist akstri hehe, var að fatta það sjálf!!! Er að vinna frá 8-16 svo er hjólið frá 16-19 og svo fer ég að keyra fulla fólkið á Trukkapartý! Ég fæ nú sjálf að taka þátt í því svo það er í lagi en ég þarf samt að keyra heim og vera voða stillt því svo er hjólið aaaaaalllllan sunnudaginn:$ En svo er það bara búið vonandi ;)

Ókillídókillí, bless í bili, ekki gleyma að kvitta fyrir komunni og/eða segja ykkar skoðun!


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 15:06:55 / tweety

Jæja...

Kominn tími á smá fréttir.

Ég er semc hætt hjá Teiti. Hætti þar í byrjun september og er farin að vinna hjá verktakafyrirtækinu Magna. Þar er ég að keyra Búkollu. Þetta er rosa spennandi og alltaf nóg að gera. Auðvitað allt öðruvísi en rútan hehe. Ég var voðalega stessuð fyrstu dagana að passa "farþegana" mín, keyra ekki of harkalega í holur og þessháttar. Sem er auðvitað óhjákvæmilegt á Kollu.

Ég byrjaði síðan LOKSINS í verklegum tímum á mótorhjólinu síðustu helgi. Búið að taka svolítið langan tíma að finna kennara og tíma sem hentar. Er einmitt að rjúka út úr dyrunum núna á leið í hjóla tíma ;)

Fór í réttir hjá m&p í byrjun september og Böddi og Emilía Rós komu að sjálfsögðu með. Það var alveg frábært. Ef þið viljið sjá myndir af því þá eru þær á síðunni hennar Emilíu.

En ég verð að hafa þetta stutt í dag, verð að drífa mig af stað í tíma og sækja svo skvísuna. Hún er búin að vera hjá pabba sínum alla helgina.

Adios ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 16:02:03 / tweety

Vinnu ves....... Eða hvað?!

Jæja, góðan daginn... Það er allt að gerast þessa dagana. Miklar breytingar í uppsiglingu hjá mér. Er búin að segja upp vinnunni og fæ vonandi að hætta sem allra fyrst.

Ég er búin að fara í nokkur atvinnuviðtöl undanfarna daga og hef litlar áhyggjur af atvinnuleysi, það er nóg af vinnu að fá ef maður nennir að standa í því að fara út og leita af henni ;) Ég fór til dæmis í viðtal áðan og er að fara á morgun í prufu. Finnst þetta mjög spennó og vona bara að allt gangi að óskum. Frábær laun líka í boði fyrir mig þar:D Þarf heldur ekki að vinna á kvöldin og um helgar frekar en ég vil :haha: Það er heldur aldrei unnið á sunnudögum svo ég get alltaf unnið þann laugardag sem Emilía Rós er hjá pabba sínum og líka fengið smá helgarfrí sjálf ;) Ætla samt ekkert að gera mér of miklar vonir, sjáum bara til hvernig morgundagurinn fer. Annars eru fleiri fiskar úti :lol:

Annars er bara allt meiriháttar að frétta af mér og mínum. Mér er rosalega létt að vera búin að segja upp. Það var farið að íþyngja mér svolítið að vinna þarna. Svo hef ég líka svo afskaplega góðan félagsskap hérna heima á kvöldin ;) Er líka bara ánægð að vera búin að fá stelpuna heim og það er allt að komast á rétt ról með háttatíma og þessháttar. Þetta stokkaðist auðvitað eitthvað upp hjá dömunni í sumar.

Svo er það Dalvík næstu helgi. Brillupið hjá Halldóru frænku. Það verður gaman að hitta alla familíuna. Sorglegt að segja það en maður er í alltof litlu sambandi við fólkið sitt:$ Þ.e.a.s. fyrir utan m&p og systkini mín. Ég fékk gistingu fyrir mig+1 í svefnpoka plássi þarna rétt fyrir utan Dalvík. Við ætlum að vera bara alla helgina, heimsækja Guggu vinkonu og annað vinafólk í leiðinni fyrst við verðum þarna.

Jamm og já... Ég kem til með að láta það berast hvað verður af vinnumálum og þ.h. Bið að heilsa að sinni, verið ekki feimin við að segja ykkar skoðun og/eða bara kvitta fyrir komunni!


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 18:14:40 / tweety

smá fréttir

Halló halló Hello

Rosalega er fólk nú duglegt að kvitta fyrir komunni og svona!!!! Thumbs Down Megið alveg bæta það, þið sem kíkið hingað inn:!:

 DivingStakk mér í djúpu laugina um daginn... Kynntist ungum manni sem mér líst bara nokkuð vel á. Shocked Reyndar búin að þekkja hann í einhvern tíma, en hef ekki mikið viljað vera að tala um það á opinberum vettvangi sökum ýmissa ástæðna...

Við Emilía höfum haft í nógu að snúast síðan hún kom heim.  Seesaw Reyndar búið að vera frekar leiðinlegt veður svo við höfum bara verið innandyra!

Allavega, hef ekkert að segja.... Of þreytt til að skrifa meira, því þrátt fyrir allt annað, þá er alltaf nóg að gera í vinnunni;) Bless í bili og munið að kvitta!






» 7 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 17:43:20 / tweety

Mikið um að vera!!!!

Góðan daginn kæru lesendur nær og fjær...:!:

Ætli það sé ekki kominn tími á smá fréttir af mér og mínum. Rocking Happy Haldið var hátíðlega upp á afmæli prinsessunnar helgina fyrir afmælið, nánar tiltekið þann 29. júlí 2007:!: Vil ég þakka öllum kærlega fyrir komuna og þakkir fyrir allar gjafirnar sem Emilía Rós fékk. Presents  Ég vil líka þakka ykkur, mamma og pabbi, kærlega fyrir hjálpina. Þið eruð frábær.

Þar sem Emilía var ekki búin í sumarfríi, fór hún í 2ja vikna heimsókn til pabba síns strax eftir afmælið og ég varð ein eftir í kotinu aftur. Þá var bara um að gera að drekkja sér áfram í vinnu eins og ég hef verið að gera í allt sumar. Það var burrað landshornanna á milli. Bus Fór meðal annars í Þórsmörk. Aldrei komið þangað áður, alveg meiriháttar staður og soldið öðruvísi að þurfa að fara yfir allar þessar ár:!:

Ég skellti mér líka á Bolungarvík í góðum félagsskap um verslunarmannahelgina. Það var bara mjög gaman. Fékk líka að vera aðeins út af fyrir mig, skipta um umhverfi og hugsa um sjálfa mig í smá tíma. Rosalega gaman að komast svona á æskuslóðirnar aftur, frekar undarleg tilfinning að keyra um Djúpið og sjá gömlu sveitina mína aftur.

Og núna er Emilía Rós komin heim aftur svo það er líf og fjör hérna megin. Trampoline Endalaus glaumur og gleði í því ;) Og talandi um það, þá er skvísan búin að draga fram litabækurnar og við erum að fara að lita. Verið nú dugleg að kvitta, bless í bili:!:


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 18:53:04 / tweety

Afmælis skvísan!!!!!!!!!!!

ELSKU FALLEGA DÓTTIR MÍN, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN :haha:

Orðin 3ja ára skvísa ;) Hún er svo mikil ást þetta barn, bara kemst ekki yfir það. Akkúrat núna er hún í sumarfríi hjá pabba sínum, svo ég brummaði beint þangað eftir vinnu til að knúsa hana í tilefni dagsins. Keypti handa henni hlaupahjól :lol: ótrúlega krúttlegt, bleikt með tveimur hjólum að aftan. Það varð auðvitað að skella því saman strax og svo var farið út að prufukeyra það :D

En nú er ég bara komin aftur suður í Njarðvíkina, aaaaaaaaaaaaaaaalein8| Langaði svoooohoohoooo mikið að taka Emilíu Rós með mér. En hún kemur heim eftir tæpar 2 vikur, svo ég verð bara að bíða þolinmóð :cry:

Svo er bara versló framundan og ég í fríi, hmmm.... hvað á maður að gera af sér?!?! Allavega, finn örugglega eitthvað til að dunda :lol: Þetta verður bara stutt og laggott í dag, munið að kvitta. ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 17:10:38 / tweety

Elska rigninguna!!!!!!

Góðan daginn!!!!!

Ferðin út á land var alveg frábær. Fór uppí Reykholt í Borgarfirði og gisti þar 4 nætur og keyrði síðan bara dagsferðir þaðan. Veit nú samt ekki alveg hvort það eigi við mig að vera í svona hótel ferðum... Fæ svo mikla heimþrá:$ Þó svo það sé ekkert sérstakt heima sem bíður mín þar sem Emilía Rós er ekki heima, þá vil ég samt koma heim á kvöldin:!:

En talandi um prinsessuna, þá kom hún í bæinn á fimmtudaginn. Það var alveg meiriháttar að fá að sjá skvísuna. Ég var reyndar föst í vinnu svo pabbi hennar tók hana með sér heim í 2 daga en ég sótti hana svo á laugardaginn og fékk að eyða smá tíma með henni. Tók allt duglega í gegn hérna heima og hélt síðan rosa afmælisveislu fyrir skvísuna á sunnudaginn. M&P komu líka óvænt í heimsókn á laugardagskvöldið og við Áslaug höfðum það gott í faðmi foreldranna yfir video fram á nótt.

Í dag er svona týpískt, liggja-upp-í-sófa-með-sæng-og-horfa-á-video veður!!! Rigning og rok:$ Alveg líka frábært að vinna í þessu veðri. Er örugglega komin með sinaskeiðabólgu af því að stilla rúðuþurrkurnar8| Það er örugglega EKKERT meira pirrandi en rigning sem getur ekki ákveðið sig, ætlar hún að vera mikil, lítil, úði, stórsjór!?!? Samt er þessi sinaskeiðabólga örugglega ekkert verri en sú sem ég var með fyrir á hinum úlnliðnum eftir að blikka alla ljóslausu bílana í umferðinni. Veit ekki alveg afhverju, en það er eitthvað sem mér tekst að láta fara alveg í mínar allra fínustu:!:

Allavega, framundan er ekkert nema sófinn og gamli góði imbinn;) Er á morgunvöktunum þessa vikuna svo það er bara rólegt loksins :haha: Maður ætti ekki að fagna of snemma. En núna hef ég loksins tíma til að gera eitthvað hérna heima. Eins og t.d. að þvo þvott :lol: Eins skemmtilegt og það nú hljómar:!: Hef lítið meira að segja í bili... Nema bara munið að kvitta ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 11:22:32 / tweety

Jebb, enn á lífi!

Fyrst og fremst... Anna María... "takk fyrir roadtrip-ið"!!! ÞÚ SVAFST ALLA HELVÍTIS LEIÐINA!!!!!!! Skemmtilegasti ferðafélagi í heimi hér á ferð takk fyrir:!: Láta mig keyra alla nóttina og það er bara hrotið alla leið. ÞAÐ VAR EKKERT!!!!!

Allavega, búin að koma því frá mér:!: Já eins og ég hef örugglega sagt hérna áður, þá er það yfirleitt allt eða ekkert í vinnunni:$ Loksins fékk ég að fara yfir á rúturnar, en er líka búin að vinna allan sólarhringinn síðan það gerðist. Gullhring eftir gullhring eftir gullhring og stöku fyllerís ferðir inn á milli. Náði að skjótast heim aðeins núna, er með hóp í Bláa lóninu en þarf ekki að sækja þau fyrr en kl 12:30. Hef ekki séð íbúðina mína í viku takk fyrir, var búin að gleyma hvernig hún lítur út. Þurfti líka nauðsynlega að komast heim með þvott, því þegar ég er búin að henda þessum hóp í bæinn aftur, þá er ég bara farin í 5 daga ferð út á land:!:

Svo er verið að vega það og meta hvort ég eigi að mæta beint á kvöldvakt á miðvikudaginn þegar ég kem heim úr ferðinni:!: Bíddu ég hélt að ég væri hætt á strætó í bili.. ööööööööm!! Skil þetta ekki:$

Anywho, ég er búin að reyna að spjalla við Emilíu daglega, hún bara segir voða lítið í símann almennt en það kjaftaði sko á henni hver tuskan í morgun heheh. Hafði sko nóg að segja skvísan. Það er víst alveg brjálað stuð í sveitinni að gefa lömbunum pela, leika við Spora og fara á hestbak. Sakna hennar svo mikið að ég gæti dáið :cry: En já svo líður að afmælinu hennar, er ennþá að vega og meta hvort ég ætli að hafa það lítið eða stórt!!! Það er eins gott að ég fái líka gott frí til að gera það sem þarf að gera hérna heima fyrir það. Ekki mikið um þrif á þessu heimili þegar maður er aldrei heima, úff, það verða sko átök:$

Jæja, má ekki vera að þesu, þarf að hoppa í sturtu, taka úr þurrkaranum, pakka niður og sækja svo þennan blessaða hóp í Lóninu ;) Adios amigos:haha: KVITTA:!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 23:21:16 / tweety

Út og suður...!

Halló Halló....:!:

Já mikið búin að burra síðustu daga... Kópavogurinn auðvitað tekinn með trompi á strætó. Brunaði síðan austur í sveitina með mömmu á fimmtudaginn eftir vinnu. Mikið rosalega var gott að hitta hana Emilíu Rós. Hún er nú ekki búin að vera lengi í burtu en mér finnst það vera heil eilífð. Var orðin lasin litla skvísan, með hita og hósta, bara einhver leiðinda flensa. Svo ég kom færandi hendi með stíla og hóstasaft og skvísa litla bara orðin hin hressasta. En henni fannst nú voðalega gott að fá að kúra aðeins hjá henni mömmu sín. Ekkert jafn æðislegt og að finna þessar litlu barnshendur halda utan um mann, og maður veit að þau finna öryggi.

Síðan var burrað aftur í bæinn seint í gærkvöldi. Anna María systir var að fara á Eiríksstaðahátíð, fyrir vestan. Ég skilaði henni bara af mér í bænum og dólaði svo heim á leið. Var komin heim um 4 í nótt. Var síðan ekki fyrr komin á fætur fyrr en það var hringt í mig og ég beðin að koma í vinnu. Sjáið hvað maður er ómissandi :lol: Tók smá skutl hérna suðurfrá sem gleymdist, vildi bara þannig til að yfirmaður minn, sem býr hérna suðurfrá, var með eina litla rútu heima hjá sér svo ég þurfti ekki að fara langt að sækja hana.

En yfirmaðurinn fékk líka að finna fyrir því þegar ég kom til baka, því ég pikkaði upp þurrkarann minn í bakaleiðinni og vantaði aðstoð við að bera hann upp í íbúðina mína. Þar sem ég þurfti hvort eð var að fara með rútuna aftur til hans þá dró ég hann með mér til að hjálpa ;) Þakka þér kærlega fyrir Einar minn :lol:

Svo er stefnan bara tekin á sófann núna.... aaaaaaaalein og yfirgefin, ætla bara að hafa það voðalega rólegt og reyna ða hvíla mig fyir komandi átök. Er víst einhver voðalega vinnu alda um það bil að skella á, svo það er gott að vera undir það búin:!: En ég hef lítið meira að segja í bili, verið bara dugleg að kvitta og verið góð hvert við annað;)

Já p.s. Kæri sækó stokker! Það er nákvæmlega EKKERT barnalegra en að hringja í fólk á öllum tímum sólarhringsins með leyninúmeri. Láttu mig og mína í friði ef þú vilt sjá köttinn þinn aftur á lífi:!:


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2012
Leitarbox

Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti